Mynd sem tengist textanum
Ég trúi á minn hátt

Fyrir 18 mánuðum síðan hófum við, ásamt vinum okkar hjá Scandinavian Design Group, það verkefni að skapa nýja ásýnd fyrir Þjóðkirkju Íslands. Leiðarljósið í allri stefnumótun var setningin „Ég trúi á minn hátt,“ sterk áminning um að kristin gildi eru í raun sammannleg gildi sem við lifum flest eftir, óháð trú.

Afraksturinn er nýtt merki, heildstætt útlit og nýr upplýsinga- og þjónustuvefur. Á vefsíðunni getur almenningur raðað saman sínum eigin gildum í persónulegan kross og kynningarherferðin sýnir þjóðþekkta einstaklinga segja frá sínum gildum. Verkefnið var leitt af Pipar\TBWA og SDG en naut liðsinnis úrvals fagaðila. Nánar hér.

Og þá mega jólin koma.

Fimmtudagur