Við erum hluti af TBWA-keðjunni sem telur yfir 300 auglýsingastofur víðsvegar um heiminn. Einkennismerki okkar er Disruption® en með því stefnumótunartóli aðstoðum við vörumerki við að feta ótroðnar slóðir og skapa sérstöðu.


Sem hluti af TBWA getum við skoðað árangur ótal herferða annarra TBWA-stofa til að læra af þeim og deila með viðskiptavinum okkar dýrmætri reynslu af markaðsstarfi erlendis.
Við vinnum með hugmyndir alla daga og látum þær verða að veruleika. Vörumerki eru óaðskiljanlegur hluti af menningu okkar en lætin þarna úti eru mikil og ótal margt sem lokkar athygli neytenda. Til að vörumerki skíni og nái í gegn skipta hugmyndaauðgi og fagleg vinnubrögð öllu máli, því við viljum ná árangri fyrir viðskiptavini okkar.
Við vinnum við birtingar auglýsinga á öllum hugsanlegum miðlum og til þess höfum við birtingaráðgjafana okkar hjá Pipar\MEDIA. Grunnurinn að hæfilegu auglýsingaáreiti liggur í markaðsrannsóknum og lífstílskönnunum ásamt faglegum vinnubrögðum við uppsetningu birtingaáætlana, þar sem þarf að finna hæfilega blöndu birtinga auglýsinga í sjónvarpi, útvarpi, prentmiðlum, stafrænum miðlum og samfélagsmiðlum.



Starfsfólk
Starfsfólk PiparTBWA er fjölskrúðug flóra skapandi listamanna, fagmanna fram í fingurgóma sem leggja metnað í störf sín. Vinnustaðurinn hefur hlotið fjölmargar viðurkenningar sem Fyrirmyndarfyrirtæki VR og PiparTBWA fékk jafnlaunavottun Jafnréttisstofu árið 2021, fyrst auglýsinga- og markaðsstofufyrirtækja á Íslandi. Jafnlaunastefna er hluti vottunarinnar.