Afreks­miðstöð Íslands
Mynd sem tengist textanum
ÍSÍ
Mynd sem tengist textanum

Afreksmiðstöð Íslands var opnuð formlega 5. maí síðastliðinn i anddyri Laugardalshallar. Merki Afreksmiðstöðvarinnar var hannað hér á stofunni ásamt vefsíðu sem skýrir tilgang og markmið AMÍ sem er að skapa íþróttafólkinu okkar umgjörð til að komast í fremstu röð. Áhugasöm geta skoðað vefsíðuna hér. Merkið hefur margþætta merkingu og felur í sér allt það sem Afreksmiðstöðin stendur fyrir: Íþróttafólkið sjálft sem kemst á toppinn, kyndilinn sem þau bera innanlands og utan og myndar um leið Í-ið í Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands. Allt þetta myndar demant sem er tákn fyrir það virði sem afreksfólk er fyrir okkur öll, sem fyrirmyndir og sem verðmæt landkynning.

Mynd sem tengist textanum
Viltu vita meira um verkefnin okkar?
ceo photo
Guðmundur
Framkvæmdastjóri - CEO
gudmundur@pipar-tbwa.is