Ástæða til þess að brosav
Mynd sem tengist textanum
SÍBS
Mynd sem tengist textanum

Í hverjum mánuði fá mörg hundruð manns vinning í Happdrætti SÍBS og hundrað útskrifast úr endurhæfingu á Reykjalundi. Þessi órjúfanlegu tengsl happdrættisins og skjólstæðinga endurhæfingarinnar mynda þungamiðjuna í nýrri herferð sem við gerðum fyrir Happdrætti SÍBS, sem er í dag eini fjárhagslegi bakhjarl framkvæmda og viðhalds fasteignanna á Reykjalundi. Án happdrættisins væri ekki mögulegt að taka á móti fólki þangað, í endurhæfingu eftir slys eða veikindi og aðstoða það við að komast aftur út í lífið – sem er auðvitað stærsti vinningurinn af þeim öllum, sá sem kallar fram breiðasta brosið. Það þekkja þau sem koma fram í auglýsingunum betur en flestir, en þau hafa öll lokið endurhæfingu á Reykjalundi, eða eiga miða í happdrættinu, og sum hvort tveggja.

Svenni Speight leikstýrði kvikmynduðu auglýsingunum og tók ljósmyndirnar, Bergþór Pálsson les og undir öllu saman ómar hinn eini sanni Söngur SÍBS eftir Oddgeir Kristjánsson, í einkar smekklegri útsetningu Bigga Tryggva. Sérstakar þakkir fá módelin, þau Katrín, Nadía, Ásgeir og Karim, fyrir að taka þátt í þessu verkefni með okkur.

Mynd sem tengist textanum
Mynd sem tengist textanum
Mynd sem tengist textanum
Mynd sem tengist textanum

Meira frá SÍBS

Viltu vita meira um verkefnin okkar?
ceo photo
Guðmundur
Framkvæmdastjóri - CEO
gudmundur@pipar-tbwa.is