Sjúk ást 2022
Stígamót
Mynd sem tengist textanum

Sjúkást er forvarnarátak á vegum Stígamóta um ofbeldi í nánum samböndum ungmenna. Markmið átaksins er að ungmenni þekki lykilhugtök á borð við mörk og samþykki og geti greint muninn á heilbrigðum, óheilbrigðum og ofbeldisfullum samböndum. Pipar hefur fylgt verkefninu frá upphafi og er þetta 5. árið í röð sem við komum að hugmyndavinnu og uppsetningu.

Í ár er áherslan sett á nýja samskiptaleið fyrir ungmenni á aldrinum 13–19 ára, netspjall fyrir áleitnar spurningar sem brenna á okkur öllum. Fagfólk svarar nafnlausum fyrirspurnum, gefur góð ráð og fagálit. Kynningarefni fyrir verkið var unnið hér innanhúss en sjónvarpsauglýsingin var unnin í samstarfi við Norður og leikstýrt af Álfheiði Mörtu Kjartansdóttur.

Á sjukast.is má finna allt um verkefnið, sem og eldri herferðir sem allar voru unnar í samvinnu Stígamóta og Pipars.

Verkefnið var valið til úrslita í Care Awards samkeppninni 2022. Keppnin er haldin á vegum alþjóðlegu samtakanna ACT, en henni var komið á fót í samstarfi við Evrópuþingið árið 2008. Herferðin hlaut einnig bronsverðlaun í flokknum Social Good á Creativepool verðlaunahátíðinni 2022. Árið 2023 var herferðin tilnefnd til PHNX-verðlauna í tveimur flokkum og einnig hlaut hún tilnefningu til Gerety auglýsingaverðlauna.

Mynd sem tengist textanum
Mynd sem tengist textanum
Mynd sem tengist textanum

Meira frá Stígamót

Viltu vita meira um verkefnin okkar?
ceo photo
Guðmundur
Framkvæmdastjóri - CEO
gudmundur@pipar-tbwa.is