Söluvefur
Mynd sem tengist textanum
Orkureiturinn

Góður fasteignasöluvefur þarf að vera aðgengilegur, auðveldur í notkun og veita greinargóðar upplýsingar samhliða vandaðri myndrænni framsetningu. Hann er í senn falleg gluggaútstilling og praktíst tól. Notandinn þarf að geta séð strax hvað er í boði og allar helstu upplýsingar um stærðir, fermetrafjölda, verð og frágang. Þetta var leiðarljósið í viðmótshönnun fyrir Orkureitinn, fyrst A hús og nú annan áfanga, D hús, sem er komið í sölu. Á Orkureiturinn.is er mikið magn upplýsinga um verkefnið og frágang íbúða, allt niður í smáatriði eins og blöndunartæki á baði o.fl – og kaupandinn getur auðveldlega fundið stillingar til að sía út sína óskaíbúð.

Vef- og viðmótshönnun fyrir Orkureitinn er eitt af viðamestu vefverkefnum sem við höfum komið að, en það frá upphafi unnið í góðu samstarfi við framkvæmdaraðilann Safír byggingar, arkitektana hjá Nordic og innanhússarkitektinn Rut Kára.

Mynd sem tengist textanum
Mynd sem tengist textanum
Viltu vita meira um verkefnin okkar?
ceo photo
Guðmundur
Framkvæmdastjóri - CEO
gudmundur@pipar-tbwa.is