Takk

Hagar

Í janúar fór nýtt og glæsilegt vildarsamfélag í loftið sem nefnist Takk. Með appi og korti í Wallet safnar þú Takk krónum þegar þú verslar Takk merktar vörur í Bónus, Hagkaup og hjá Eldum rétt. Takk krónurnar nýtast svo sem greiðsla upp í næstu ferð.
Ásýnd og ímynd Takk var öll unnin hér á Pipar. Útlit, textar, grafísk hönnun, hreyfihönnun, upplifun og öll framleiðsla miðar að því að búa til líflegt og aðgengilegt vörumerki sem talar til allra.
Pétur Jóhann Sigfússon fer á kostum í aðalhlutverkinu sem hinn ofurhressi Takkari. Það var RADAR ehf. sem framleiddi kvikmyndaða hlutann, Einar Egilsson leikstýrði og Atli Þór Alfreðsson tók ljósmyndir.
Takk — fyrir okkur!







Viltu vita meira um verkefnin okkar?
