Morgunfundur um þjónustu í verslunum og á netinu
Gervigreind hefur djúpstæð áhrif á leitarniðurstöður og hvernig fólk leitar að upplýsingum. Fjórða víddin er komin inn. Hvað er að gerast? Hvernig er hægt að bregðast við?
Við sjáum organic traffík minnka verulega á fjölmörgum vefsíðum, hvort sem unnið er í WordPress eða öðrum CMS-kerfum, þrátt fyrir fjárfestingu í SEO og góðu efni. Ástæðan er meðal annars sú að AI Mode, Gemini og ChatGPT hafa tekið yfir stóran hluta upplýsingaleitar, þar sem notendur fá svörin strax frá gervigreindartólum og ljúka ferlinu þar (zero-click results).
Þessar djúpstæðu breytingar eru að gerast hratt. Á fundinum verður fjallað um þessi nýju trend, hvað raunverulega er að gerast og hvernig fyrirtæki geta tekið næstu skref á tímum óvissu. Við tölum um „fjórðu víddina“ þegar gervigreindin er tekin við, nýja tegund af efni sem skilar betri árangri ásamt öðrum hagnýtum ráðum.
Sjáumst hress í Kaaberhúsinu, föstudaginn 14. nóvember kl. 9:00.
ATH. Bílastæði við húsakynni okkar að Guðrúnartúni 8 eru fyrir framan húsið (gjaldskyld, svæði 3), meðfram Sæbraut. Gengið er inn í húsið úr portinu, niður tröppur á bak við. Verið velkomin!
Vegna framkvæmda eru bílastæðin færri en venjulega. Því mælum við með að vera á fyrra fallinu til að tryggja sér stæði.
PiparTBWA Guðrúnartún 8, 105 RVK. Föstudaginn 14. nóvember kl. 9:00-10:30
09:00 SEO til GEO: Staðan í dag 09:30 How AI Mode works 10:00 Spurningar og umræður Kaffiveitingar í boði.
Viðburðurinn er ókeypis en nauðsynlegt er að skrá sig.